05. desember 2007 klukkan 01:05
Já komið þið sæl lesendur góðir, við erum mætt aftur og ætlum að segja hvað drifið hefur á daga okkar hér.
- Gudda systir kom í heimsókn og gisti hér hjá okkur þar sem grenið hennar Jónu er alltof lítið.
- Erum ekki enn búin að túristast neitt síðan við fluttum hingað nema fara í dýragarðinn og uppí Kólumbus styttuna.
- Sindri er búinn í spænsku skólanum og habla espaniol muy bien.
- Ég laug í þarsíðasta punkti því við fórum í porta ventura skemmtigarðinn fyrir nokkrum vikum með Jónu, Toni og Guddu og skemmtum okkur mjög vel.
- Motturnar okkar Helga fengu að fjúka eftir annasama daga þar sem við þurftum hreinlega að lemja af okkur kvenmennina (við lömdum samt enga).
- Og þá að máli málanna... Við Birna erum að koma heim á föstudagin, nánar tiltekið 7. desember og verðum að vinna í Reykjavík fram að jólum. Svo er stefnan sú að fara aftur hingað út eftir jól því hér eru hlutirnir að gerast skal ég segja ykkur.
- Við Birna erum bæði komin með vinnu fyrir jól, Birna í Pennanum í Smáralind og ég í raftækjadeildinni í Hagkaup Kringlunni, hljómar spennandi...
- Okkar kæri sambýlingur Helgi er svo tæknivæddur að hann niðurhalaði í gegnum veraldarvefinn fyrstu 10 þáttunum af næturvaktinni og höfum við verið að horfa á þá undanfarið og ekki leiðst það mikið.
Jæjja ætla að fara gera skoðanakönnun hér á síðuna sem þið verðið öll að taka þátt í, þannig að við kveðjum að sinni frá Barcelona, Birna Rut og Sindri.
Sindri Višarsson
12. nóvember 2007 klukkan 20:48
Já það er ekki búið að ræna okkur, við erum bara dáldið löt í blogginu, sorry Villa mín ;) En já það sem gerst hefur:
· Við fluttum inn í aukaherbergið hjá Helga og Hjöddu og búum nú hér hjá þeim við góðan orðstír.
· Sindri er byrjaður í spænskuskóla, verð 2 tíma á dag í 4 vikur og byrja eldsnemma á morgnanna eða réttara sagt hálf 2.
· Birna hittir konuna sem hún passar hjá 1 sinni í viku og þær tala saman á spænsku og borða spænskan mat.
· 40” eru að gera gott mót hérna í stofunni en það eru 3 sjónvarpsflakkarar tengdir við tækið þannig að við ættum að geta haft eitthvað til að horfa á...
· Það kostar 75 evrur að pissa úti á götu, komumst að því um helgina þegar einn vinur okkar var svo óheppinn að þurfa að skvetta úr honum á miðri römblunni...
· Guðrún systir er að koma í kvöld og verður í viku, getum kannski túristast eitthvað með henni.
· Valbjörn frændi og Katrín eiginkona hans voru hérna í síðustu viku, stoppuðu reyndar bara í einhverja 3-4 daga en náði nú samt að hitta þau eitthvað, þau stoppa bara lengur næst.
· Við Helgi erum búnir að vera safna skeggi í nokkrar vikur og skörtum nú þessum líka myndarlegu mottum sem hefur orðið til þess að spænska kvenþjóðin eltir okkur á röndum, ekki slæmt það J
· Það eru myndir héðan frá barcelona á myspaceinu hennar Birnu, www.myspace.com/birna_rut
· Jæjja pizza sendillinn var að dingla þannig að við erum farin að éta og horfa á my name is Earl
See ya later dudes, Sindri og Birna Rut
Sindri Višarsson
18. október 2007 klukkan 20:29
Heil og sæl, hvað er að frétta frá Íslandi?? Orðið allt of langt síðan við blogguðum og hefur nú heldur betur margt gerst síðan þá. Við sögðum ykkur víst í síðasta bloggi að við værum að fara flytja inní einhverja íbúð, en annað kom nú á daginn. Sama dag og við áttum að flytja inn þá kom einhver gaur frá fasteignasölunni í íbúðina að gera við eitthvað í íbúðinni og sá að það var einhver að flytja inn og hann bannaði stelpunum að leigja okkur hergbergi nema við myndum borga fasteignasölunni 1500 evrur, sem er tæplega 150.000 kall, auk þess sem við áttum bæði að borga 400 evrur á mann en ekki bara 400 á herbergið. Þannig að við hættum nú snarlega við þetta. Eftir það vorum við nokkra daga í viðbót hjá Jónu en fórum svo í Montgat sem er hérna rétt fyrir utan Barcelona og erum þar í íbúðinni hjá pabba hans Toni, sem er mjög stór, erum með 3 herbergi og eitt baðherbergi útaf fyrir okkur. Erum reyndar líka búin að gista eina nótt hjá Helga og hjöddu og eina nótt hjá Árna og Höllu þannig að við erum bara svona að flakka á milli.
Við Birna fórum í gær til Granollers að horfa á Árna og hans lið etja kappi við Ólaf Stefánsson og hans félaga í Ciudad Real, sem endaði með 2 marka sigri Ólafs og félaga. Eftir það fórum við heim til Árna og elduðum okkur svínakjöt og meððí og spiluðum svo eitthvað fram á nótt og gistum svo þar.
Við sögðum frá því í síðasta bloggi að ég væri búinn að vera leita mér að sjónvarpi og skilaði leitin loks árangri á mánudaginn síðasta en þá fórum við Árni í hina stórgóðu búð Media Markt. Þar fann ég Sony Bravia 40" lcd sjónvarpstæki á einungis 899 evrur, sem er akkúrat 76.000 krónur. Ég var nú ekki lengi að skella mér á gripinn og kippti einnig með einu stykki af Sony heimabíói líka

Samtals var þetta bæði þegar búið er að reikna Tax free afsláttinn akkúrat 83.000 krónur. Þvílíkt grín!! Illa sáttur með þessi kaup.
Síðan erum við Birna að fara skoða einhverja íbúð á morgun en annars getur vel verið að við flytjum inn til Helga og Hjöddu, kemur allt saman í ljós á næstu misserum, vonandi einhvern tíman fyrir jól allavega.
En við erum hætt í Bili, Sindri og Birna Rut
Sindri Višarsson
08. október 2007 klukkan 22:53
Já góðann og blessaðan daginn héðan frá Barcelona.Héðan er allt mjög gott að frétta og Barcelona er að tríta okkur ruddalega vel. Höfum búið hjá Jónu síðan við komum en það mun breytast á morgunn því að þá flytjum við í hina íbúðina sem við erum búin að finna okkur. Ætlum semsagt að leigja herbergi með 2 spænskum stelpum en þær eru að vinna til 9 á kvöldin og svo fara þær heim til sín flest allar helgar þannig að við erum bara með íbúðina J Við ætlum svo bæði að reyna að fara í spænskuskóla, eða allavega ég því Birna kann nú sitthvað í spænskunni. Birna er að passa litla stelpu sem að á íslenskann pabba en spænska mömmu þannig að hún talar bæði íslensku og spænsku og heitir Agnes. Ég var að spá í að fá mér vinnu líka en ég bara hreinlega nenni því ekki, ætla frekar að sofa út og læra spænsku og svona, ég meina, maður lifir bara einu sinni (uppáhalds setningin mín þessa dagana). Ég og annar íslenskur strákur sem heitir Helgi (Arason og var í handboltanum hér í denn) fórum til Grannollers síðasta miðvikudag að horfa á Árna og félaga þar keppa við Portland San Antonio en í því liði er einmitt Ivano Balic sem er einn besti handboltamaður í heimi, frekar gaman að fylgjast með honum spila. Fórum svo heim til Árna eftir leik og fengum okkur nokkra og svo gistum við Helgi þar, mjög gaman.Fórum svo að djamma á laugardaginn, ég Helgi og Hjödda vinkona hans byrjuðum hér á svölunum hjá Jónu en þær Birna fóru í eitthvað íslendingapartí. Sátum og drukkum hér og fórum svo í bæinn, mikið stuð og mikið drukkið. Svo er ég á fullu þessa dagana að leita mér að sjónvarpi, er ekki alveg búinn að ákveða hvort ég fá mér 37” eða 40” sjónvarp, kostar í kringum 90.000 hérna en samskonar sjónparp heima er á 190.000 – 250.000. krónur. Þannig að það sér það hver maður að það er hreinlega ódýrara að henda þessum pening, þetta er svo ódýrt. Svo ætlum við einnig að kaupa okkur sjónvarpsflakkara, kostar um 10.000 hérna en er á um 20.000 – 30.000 heima. Eins og þið sjáið þá er lífið alveg að fara með okkur og við erum hreinlega að bugast á þessu eimdarlífi, veit ekki hvort við meikum þetta fram að jólum, heheh. Nei þetta er alveg geggjað að vera hérna og við erum svo sannarlega að njóta lífsins, ég meina, maður lifir bara einu sinni
Ætlum að fara sofa núna, þurfum að flytja á morgun og halda áfram sjónvarpsleit...Biðjum að heilsa öllum heima og hafið það gott á þessu rándýra rokrassgati J
Birna Rut og Sindri
Ps. Það eru komnar myndir inná myndasíðuna hér að ofan úr interrailinu, samt ekki alveg allar, en Bibban er að vinna í því.
Sindri Višarsson
01. október 2007 klukkan 21:56
Jaeja Hemmi minn, loksins kemur blogg.
Tad hefur sko margt gerst tessa daga sem ekkert hefur verid bloggad og hefur nu faekkad um einn i hopnum, en byrjum tar sem vid endudum sidast.
A tridjudaginn sidasta forum vid i Pompei sem er baer inni i Napoli sem grofst undir osku i eldgosi eitthvad um 75 e.kr. Baerinn var svo grafinn upp fyrir einhverjum arum og er tetta mjog flott ad sja tessi hus og folkid sem bjo tarna.
Daginn eftir forum vid svo til Romar og skodudum Colessium sem var geggjad flott (forum samt ekki inn i tad) og forum svo i vatikanid sem er eitt tad flottasta sem vid hofum a aevinni sed. Gengum i gegnum einhverja svona grafhvelfingu pafanna sem er med svona minningarkistum um ta fraegustu og tad var mjog skritid. Tar kraup folk a baen og sumir gretu og tetta var mjog skritid ad vera tarna. Forum svo i Peturskirkjuna sem er hladin gullskrauti (eins og allt vatikanid) og er alveg ótrúlega flott. Var ad spa i hvad kirkjan er buin ad eyda morgum milljordum i tessa byggingu og svo berst hun gegn fridi, rettlaeti, jafnretti og eg veit ekki hvad og hvad. Hefdi ad minu mati eitthvad af tessum peningum matt fara i annad en gullstyttur og likneski (tetta er to einungis min skodun og tad tarf ekkert ad vera ad folk se sammala mer(Sindri))
En ja eftir ad hafa skodad vatikanid héldum vid áfram med turistabusinum ad skoda Rom og stoppudum fyrir utan einn allra fraegasta og flottasta stadinn i Rom og forum og fengum okkur ad borda..... já tid giskudud rétt, ég er ad tala um Hard Rock!!! Birna hitti tar islenska vinkonu sina sem for med okkur eftir matinn ad sja einhvern geggjadann gosbrunn sem er svona half falinn milli husa tarna i rom en er alveg brjalad flottur og risastór. Ekki vildi to betur til ad tegar vid forum uppa lestarstod eftir ad hafa gosbrunninn var sidasta lestin til Napoli farin fyrir 5 mínútum og engin lest fyrr en morguninn eftir. Nu voru gód rád dýr og vid ákvádum ad fara med lestinni til einhvers baejar tarna rétt hjá Napoli og tokum svo lest tadan til Napoli klukkan half 6 um morguninn. Ekki mikid sofid tá nótt. Tegar vid komum svo uppá hostel um klukkan 8 foru Birna og Bobby ad sofa og svafu i 2 tima adur en vid logdum af stad aftur tvi vid turftum ad tékka okkur ut klukkan 10. Ég vissi ad ef ég faeri ad sofa ta tyrfti ad rifa husid til ad vekja mig tannig ad ég skellti mér bara i sturtu og svona i stadinn. Tegar tau voknudu svo forum vid svo ad taka okkur til og forum svo til Romar til ad skoda sixtínsku kapelluna tvi ad hun var lokud daginn ádur tegar vid aetludum ad skoda hana. Vid áttum samt ad taka lest til Nice klukkan 15.45 og vorum vid tvi i miklu kapphlaupi vid timann. Vid hlupum tvi ut i naesta leigubil sem vid sáum og létum hann skutla okkur beint í sixtínsku kapelluna. Vid spurdum hann hvad vid gaetum verid snogg ad skoda tetta og hann sagdi ad vid vaerum nu allavega 40 min. ad skoda tetta. Vid afsonnudum tad en vid settum nytt heimsmet i ad skoda kapelluna en vid vorum ekki nema 20 min. ad tvi. Tad var lika eitt af tvi allra flottasta sem vid hofum séd og vorum vid heillud af málverkunum i loftinu, tá sérstaklega adalmyndinni eftir michaelangelo, held hún heiti dómsdagur eda eitthvad tannig. Brjálaedislega flott málverk og eins og Bobby ordadi tad, svo er fólk ad gera eitthvad mikid ur Monu Lisu. En já eftir ad hafa skodad kapelluna tutum vid af stad aftur og hlupum i gegnum endalausa ganga med geggjudum málverkum og skrauti til ad reyna ná lestinni. Hefdum getad eytt morgum klukkutimum i tetta en tad verdur bara ad gerast naest. En já vid semsagt nádum taxa og bádum hann ad bruna uppá lestarstod og tegar tangad var komid hlupum vid Bobby ad ná í toskurnar en vid hofdum látid geyma taer á lestarstodinni og á medan borgadi Birna leigubílstjóranum og tékkadi á hvada hlidi vid vaerum. Eftir mikinn svita komumst vid svo um bord i rétta lest og vid komumst til Nice á réttum tíma. Fyrir tá sem ekki vita er Nice í sudur Frakklandi.
Í Nice vorum vid svo á einhverju hosteli sem er búid ad vera valid 5 ár í rod eitt af 10 bestu hostelum Evrópu tannig ad vid vorum í gódum málum tar. Tau fóru medal annars ad kafa en ég komst tví midur ekki i tad vegna veikinda, en tau sogdu ad tad hafi verid geggjad.
Fórum svo til Monaco í gaer sem er geggjad flottur stadur med brjáludum snekkjum og bílum. Bara millar sem búa tar.
Tókum svo naeturlest hingad í nótt og fórum adeins í baeinn i dag og svo yfirgaf Bobby okkur um klukkan 7 í kvold og er einmitt núna ad fljúga til London tar sem hann tarf ad bída í 12 tíma eftir fluginu heim. (Ef tú lest tetta Bobby tá gleymdirdu svortu buxunum sem tú keyptir í Ancona)
En ég aetla ad fara segja tetta gott, allir sem eru búnir ad vera lesa tessa sídu eiga svo ad kvitta hér ad nedan. Vid vonum ad tid hafid skemmt ykkur vid ad lesa hrakningasogur af okkur undanfarinn mánudi en tessi ferd hefur verid frábaer i alla stadi og algjorlega ógleymanleg.
Núna tekur svo vid annad aevintýri hjá okkur Birnu Rut en vid aetlum ad búa hér í Barca fram ad jólum, vonum ad tad gangi vel. Erum ad spá í ad blogga ef einhver nennir ad lesa tad en vitum ekki hvort vid eigum ad halda áfram med tessa sídu eda byrja med nýja, hvad finnst ykkur??
En vid tokkum fyrir okkur,
Birna Rut, Sindri og Trausti tór
Sindri Višarsson
24. september 2007 klukkan 17:52
Godann og blessadann daginn. Erum tessa stundina stodd i Napoli en vid komum hingad um klukkan 12 i gaerkvoldi eftir frekar langt ferdalag. En byrjum a byrjuninni.
Sidast tegar vid bloggudum vorum vid ad bida eftir tvi ad skipid okkar til Santorini faeri en tad for klukkan 7 um morgunninn tann 18. sept. Vid vorum svo komin til Santorini um klukkan 3 i steikjandi hita og forum beint i sundlaugina sem var vid hotelid okkar

Daginn eftir forum vid svo og leigdum okkur 2 fjorhjol og keyrdum um alla eyju og var tad geggjad (jafnadist to ekkert a vid fjorhjolid i sveitinni). Eftir ad hafa teyst um alla eyju og tekid mikid af myndum og keypt minjagripi og svona var tekid tvi rolega um kvoldid.
Seinni daginn var svo bara rolt um stadinn og chillad i solbadi vid sundlaugina adur en vid forum heim en vid attum ad taka ferjuna aftur til baka kl. 15.00 tann 20. Semsagt geggjud ferd og geggjadur stadur.
Vid komum svo til Athenu um kvoldid og aetludum ad vera bara eina nott tar en svo fengum vid Birna baedi i magann tannig ad vid vorum 2 naetur tar og gerdum frekar litid.
I fyrradag tokum vid svo skipid aftur til italiu, nanar tiltekid Ancona og svo beint lest til Romar og tadan til Napoli sem vid erum nuna.
Erum a mjog flottu hosteli her en vid aetlum ad vera her i 4 naetur, semsagt 3 i vidbot. I dag roltudum vid um baeinn og vorum nu ekkert of heillud, frekar skitug borg... en samt svosem allt i lagi. Ekki var to lukkan med okkur tvi vid tokum svona lest sem keyrir eftir spori a gotunum og aetludum bara ad sleppa tvi ad borga og taka svo bara heimska turistann a tetta, "" ha, kostar eitthvad i tetta" en tad var ekki ad virka tvi tad kom einhver vordur og sem var med police badge og rukkadi okkur um 35 evrur! og by the way, hann taladi ekki stakt ord i ensku og tudadi eitthvad a itolsku allann timann sem vid vorum ad tala vid hann, vorum ordin frekar pirrud. En svona er lifid, you win some you lose some.
Aetlum svo ad bara a morgun til Pompei sem er vist mjog flottur stadur og svo hinn daginn til Romar.
En ja 1 verdlaun i duglegasti kommentarinn sem Villa faer er ferd fyrir 3 til Barcelona* i haust fra 3 okt. til svona 15. des. Til hamingju Villa!!
En segjum tetta gott i bili
Birna Rut, Sindri og Trausti
* a eigin kostnad
Sindri Višarsson
17. september 2007 klukkan 22:10
Jaejja ta erum vid maett aftur og nuna erum vid stodd i Athenu. Komum hingad a laugardagskvoldid med sveittustu lest i heiminum fra Patras, en tangad sigldi skipid fra Italiu. En hitinn i tessari lest var mjoooog mikill og hristist hun til og fra eins og russibanareid vaeri um ad raeda, og ekki voru saetin til ad baeta tetta....
Tegar vid komum svo hingad um 21.00 a laugardagskvoldid vorum vid ekki med neitt hostel bokad tannig ad vid roltum inna eitthvad hotel og spurdum um herbergi en tar var allt full en konan sem var ad vinna tar tekkti konu sem var ad leigja ut ibud her i bae a 100 evrur nottina fyrir okkur oll. Vid slogum til og vorum tar i 2 naetur.
A sunnudaginn var svo kosningadagur her i Grikklandi (vitum ekki hvort tad hafi verid eitthvad i frettum heima) en tannig er mal med vexti ad a kosningakvoldi verda Grikkir biladir og teyta ludra, syngja, dansa og veifa griska fananum um allt. Eftir erfidan dag vorum vid samt bysna treytt tannig ad vid aetludum ad fara sofa um 12 leitid en Grikkirnir voru ekkert a tvi ad leyfa okkur tad. Hver einasti bill la a flautunni tegar hann keyrdi fram hja til um tad bil 3 um nottina og var tvi ekki mikid sofid a medan teim latum stod. I dag forum vid svo og skodudum Akropolis haed i allavega 30 stiga hita og var tad storfenglegt, tvilikt utsyni ofan af toppnum!! Dagurinn i dag einkenndist lika af mjog miklu labbi og erum vid buin ad labba stanslaust fra 11 i morgun til svona 8 i kvold, tid getid rett ymindad ykkur svitan sem kemur fra islendingum sem eru von frostinu ad vera labba med 15 kiloa bakpoka i 30 stiga hita.... reyndar voru bara 3 klukkutimar af tessu med bakpokann (aetlum ekkert ad reyna vera gera okkur ad meiri hetjum en vid erum) Vid erum svo ad fara med ferju til Santorini klukkan 7 i fyrramalid og aetlum bara ad bida herna a hafnarterminalinu i nott... tad verdur stemning...
Einnig ma geta tess ad vid erum ekki buin ad fara i sturtu sidan a fostudagskvoldid sidasta tannig ad tad er god mannalykt af manni nuna!
Vid aetlum svo ad kryna heidursgest sidunnar en tad er hun elskulega Villa fraenka sem er laaaangduglegasti kommentarinn herna... Go Villa!!!
Segjum tetta gott i bili,
Birna Rut, Sindri og Trausti
Sindri Višarsson
13. september 2007 klukkan 12:00
Jaejja ta er mesta braedin runnin af manni og vid aetlum ad blogga aftur.
Vid komum hingad til Kroatiu adfaranott tridjudags med ferju og vorum komin hingad snemma a tridjudagsmorgninum.
Baerinn sem vid erum i heitir Split og er mjog fallegur gamall baer. Her eru mjog flott gomul hus og vid hofum tad mjog gott her. Erum buin ad gista her 2 naetur.
I gaer gerdum vid svo kaup aldarinnar. Tannig er mal med vexti ad tad eru mjog fallegar eyjar her i kring tannig ad vid akvadum ad kaupa okkur tur med bat ad skoda eyjarnar. Vid keyptum okkur siglingu sem vid heldum ad aetti ad vera 2 tima utsynistur um einhverja eyju en tad var einhver misskilningur tar a ferd. Vid keyptum okkur far med einhverri ferju a einhvera eyju sem ad 2 tima sigling til. Tar gatum vid svo einungis verid i um 40 minutur tvi sidasta ferja heim for um klukkutima seinna og vid med buin ad boka hostel her i Split. Vid tokum tvi halftima rolt um baeinn, skodudum einhvern markad og keyptum melonu og forum svo aftur til baka...
Semsagt 4 tima sigling og halftima stopp... vid hlaegjum ad tessu nuna en vid vorum ekki alveg nogu satt med tetta i gaer, gaman ad tessu.
i kvold eigum vid svo far aftur til italiu og tadan forum vid svo til Grikklands tar sem verdur slappad af i nokkra daga og einnig slett eitthvad ur klaufunum, vonandi bara ad tad endi ekki eins og sidast...
Sidast en ekki sist vorum vid mjog anaegd med ad heyra af 3 stiga hitanum a Akureyri... tad er sama hitastig her, bara med einu nulli fyrir aftan, heheheh
Bidjum ad heilsa ollum og verid nu dugleg ad kommenta
Birna, Sindri og Trausti 
Sindri Višarsson
13. september 2007 klukkan 09:50
Vorum buin ad skrifa tvilikt langt helvitis blogg en ta turkadist allt ut tegar vid vorum ad vista og vid nennum ekki ad blogga aftur.... erum samt i Kroatiu
Birna, Sindri og Trausti
Sindri Višarsson
08. september 2007 klukkan 14:35
jaeja eftir long ferdalog og litinn svefn undanfarna daga erum vid komin til Rimini og erum her i mjog godu yfirlaeti. komum hingad i gaerkvoldi og tad gekk mjog vel ad finna hostelid og ekkert vesen.... eitthvad nytt i tessari ferd. Vorum svo a strondinni i allan dag og forum a hjolabat i geggjudu vedri.... hvernig er vedrid annars a Islandi???? Aetlum ad vera herna i allavega 3 naetur adur en vid forum til grikklands i enn meiri sol og sumar. I kvold verdur svo fyrsta djamm ferdarinnar og verdur tad eflaust geggjad...
Bidjum ad heilsa heim i rokid og rigninguna (vonandi)
Birna, Bobby og Sindri.
Sindri Višarsson